Tveir menn voru handteknir um borð í grænlenska togaranum Polar Nanoq í hádeginu í dag. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Grími Grímssyni yfirlögregluþjóni sem stýrir rannsókninni á hvarfi Birnu Brjánsdóttur.
Ekkert hefur spurst til Birnu frá því aðfaranótt laugardags og víðtæk leit hefur staðið yfir undanfarna sólarhringa.
Sjá einnig: Tímalína Birnu frá því hún yfirgaf Húrra útskýrð, leit Landsbjargar hafin á ný
Sérsveitarmenn fóru um borð í Polar Nanoq úr þyrlu Landhelgisgæslunnar, TF LÍF. Þeir tóku yfir stjórn skipsins sem siglir nú til hafnar í Hafnarfirði. Mennirnir sem voru handteknir verða yfirheyrðir við komuna til landsins en þeir eru taldir búa yfir upplýsingum um hvarf Birnu.
Grímur segir í tilkynningunni að aðgerð sérsveitar ríkislögreglustjóra hafi tekist afar vel og var stýrt af lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, ríkislögreglustjóranum og Landhelgisgæslu frá stjórnstöð Landhelgisgæslunnar.
Enginn mótþrói var sýndur þegar lögreglumennirnir stigu um borð í skipið og tóku yfir stjórn þess. Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu þakkar ríkislögreglustjóranum, Landhelgisgæslunni og áhöfn danska varðskipsins HDMS Triton fyrir samstarfið og veitta aðstoð.
—
Tilkynningin í heild:
Um hádegisbil í dag handtóku lögreglumenn í sérsveit ríkislögreglustjórans tvo menn um borð í grænlenska fiskiskipinu Polar Nanoq u.þ.b. 90 mílur suðvestur af landinu. Sérsveitarmennirnir fóru um borð í skipið úr þyrlu Landhelgisgæslunnar, TF LÍF. Þeir tóku yfir stjórn skipsins sem nú siglir til hafnar í Hafnarfirði. Ástæða aðgerðar lögreglu er sú að við rannsókn lögreglu á hvarfi Birnu Brjánsdóttur hafa vaknað grunsemdir um að þeir sem handteknir voru búi yfir upplýsingum um hvarf hennar. Hinir handteknu verða yfirheyrðir við komuna til landsins. Aðgerð sérsveitar ríkislögreglustjórans tókst afar vel og var stýrt af lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, ríkislögreglustjóranum og Landhelgisgæslu frá stjórnstöð Landhelgisgæslunnar. Enginn mótþrói var sýndur þegar lögreglumennirnir stigu um borð í skipið og tóku yfir stjórn þess.
Í gær fóru fjórir lögreglumenn frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu með þyrlu Landhelgisgæslunnar til móts við danska herskipið HDMS Triton og þar um borð. Skipið sigldi síðan til móts við Polar Nanoq. Skipin mættust við miðlínu á milli Íslands og Grænlands um kl. 6 í morgun. Ekki varð af því að lögreglumennirnir færu um borð í grænlenska skipið þegar skipin mættust við miðlínu heldur var ákveðið að skipið sigldi áfram áleiðis til Hafnarfjarðar og þyrla Landhelgisgæslunnar flygi til móts við skipið með sérsveitarmenn ríkislögreglustjórans svo sem að framan greinir. HDMS Triton kemur til hafnar í Hafnarfirði á sama tíma og Polar Nanoq.
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu þakkar ríkislögreglustjóranum, Landhelgisgæslunni og áhöfn HDMS Triton fyrir samstarfið og veitta aðstoð