Söngvarinn Ari Ólafsson grét í viðtali á RÚV eftir að hann flutti lagið Our Choice á sviðinu í Laugardalshöll í Söngvakeppni Sjónvarpsins í kvöld. Ari var ánægður með flutninginn og í viðtali við Björgu Magnúsdóttur reyndi hann ekki að hafa hemil á tárunum.
Spurður út í leyndarmálið á bakvið flutninginn gerði Ari sitt besta við að koma tilfinningum sínum í orð: „Æfa og bara. Vera jákvæður. Ég er svo virkilega þakklátur fyrir allt. Þessi ást sem ég er að fá á sviðinu, þetta gerir líf mitt,“ sagði hann.
Á Twitter tístir fólk að kappi um keppnina undir kassamerkinu #12stig. Allt fór á hliðina þegar Ari grét og sumir sögðu sama brandarann.
Fólk var ánægt með Ara
Djöfull er Ari flott fyrirmynd fyrir unga stráka! Ungur maður MEÐ TILFINNINGAR?????? #12stig
— Elisabet Hanna (@elisabethanna) March 3, 2018
Ari er flottur og einlægur. Sýnir tilfinningar sem margir þarna úti eru hlægjandi yfir en honum er drullusama! #12stig
— Þorgrímur S Ólafsson (@ThorgrimurSmari) March 3, 2018
Vann Ari keppnina núna? #12stig
— Reynir Eurovision (@euroreynir) March 3, 2018
Runnu ekki 12 tár niður hjá Ara? #12stig #Tilfinninga-Ari
— Gauti Guðmundsson (@gautig1) March 3, 2018
Ari er maðurinn sem íslenska þjóðin needs but not the one it deserves. #12stig
— Atli Jasonarson (@atlijas) March 3, 2018
Ég er farinn að grenja #12stig pic.twitter.com/ov9GY32f5Y
— Sigurjón Þórisson (@Sigurjon76) March 3, 2018
EinlægAri #12stig
— Daði Georgsson (@daxarinn) March 3, 2018
En sumir sögðu sama brandarann
Ari tekur Ingu Sæland á þetta #12stig
— Vera Knutsdottir (@knutsdottir) March 3, 2018
Já já taka Ingu Sæland á þetta bara!#12stig
— Gísli Björgvinsson (@Gisli_B) March 3, 2018
Ari að vinna með Ingu Sæland herferðina #12stig
— Viggó Kristjánsson (@kristjansson73) March 3, 2018
https://twitter.com/sigvaldisig/status/970034544173813760
https://twitter.com/baldursdottir_/status/970034506152497154