Hljómsveitin Queen sendir loksins frá sér lagið There Must Be More to Life Than This, þar sem Freddie Mercury og Michael Jackson leiddu saman hesta sína fyrir 33 árum, í nóvember.
Lagið verður eitt af þremur óútgefnum lögum á plötunni Queen Forever, sem kemur út 11. nóvember. Lagið var samið þegar Queen vann að plötunni Hot Space en upptökur voru aldrei kláraðar. Lagið endaði svo á sólóplötu Freddie Mercury frá árinu 1985, Mr. Bad Guy, en þá var Jackson fjarri góðu gamni.
Hlustaðu á lagið hér fyrir neðan: