Youtube-notandinn Jonathan H. Liu birti á dögunum myndband sem sýnir tveggja ára dóttur hans syngja stef Svarthöfða í Star Wars, The Imperial March, í rúmi sínu. Sjáðu myndbandið hér fyrir neðan.
Myndbandið hefur brætt hjörtu Star Wars-aðdáenda víða um heim og áhorfin nálgast milljón. Mátturinn er svo sannarlega með þessari.