Skemmtikrafturinn Sóli Hólm mun ásamt Guðrúnu Dís Emilsdóttir stjórna spurningaþættinum Útsvari þegar þátturinn hefur göngu sína á Föstudaginn. Þetta er að öllum líkindum stærsta verkefni Sóla á sjónvarpsskjánum og reikna má með undirbúningur sé nú í fullum gangi. Eitt virðist þó ekki vera komið á hreint en það er, hverju hann á að klæðast.
Hann brá því á það ráð að spyrja fylgjendur sína á Twitter í hverju hann ætti að vera. Fylgjendur Sóla voru ekki lengi að taka við sér og hafa fjölmargar góðar hugmyndir komið fram.
Íþróttafréttamaðurinn, Tómas Þór Þórðarsson leggur til að Sóli klæðist búning
Ég segi go like Baldvin í einhverjum kick ass búning.
— Tómas Þór Þórðarson (@tomthordarson) September 12, 2017
Er þetta ekki lausn?
— Kári Þrastarson (@karithrastarson) September 12, 2017
Sóli hefur áður tekið djarfar ákvarðanir í klæðaburði…
Þessu pic.twitter.com/htSR9UoqYh
— Snærós Sindradóttir (@Sindradottir) September 12, 2017
Hér er fín lausn
Full Kit pic.twitter.com/XpIvNPKzgn
— Ásgeir Halldórsson (@asgeir86) September 12, 2017