Valitor sagði fyrir fimm árum Kortaþjónustuna vera síkvartandi. Síðan þá hafa tvö fyrirtæki undir stjórn þáverandi forstjóra, Höskulds Ólafssonar, þurft að borga háar sektir til Samkeppniseftirlitsins, Valitor og Arion banki.
Arion banki, Íslandsbanki, Landsbankinn, Borgun og Valitor hafa, hvert fyrirtæki fyrir sig, gert sáttir við Samkeppniseftirlitið vegna rannsóknar eftirlitsins á samkeppnishömlum á greiðslukortamarkaði. Samkeppniseftirlitið hefur lagt sektir á félögin sem samanlagt nema 1.620 milljónum króna. Þetta kemur fram á mbl.is.
Samkvæmt Samkeppniseftirlitinu er sekt Arion banka 450 milljónir króna og sekt Valitors 220 milljónir.
Málið hófst árið 2009 þegar Kortaþjónustan ehf. kvartaði annars vegar undan útgefendum greiðslukorta, Arion banka, Íslandsbanka og Landsbankanum, og færsluhirðunum Borgun og Valitor hins vegar. Taldi Kortaþjónustan að þessir aðilar hefðu gerst brotlegir við samkeppnislög og endaði það með risasekt í dag.
Áhugavert er að skoða frétt Vísis frá því í júlí 2009. Þar kemur fram að Höskuldur Ólafsson, þáverandi forstjóri Valitors, segi Kortaþjónustuna vera síkvartandi og að kæran eigi ekki við rök að styðjast. Þá er áréttað að Valitor hafi fylgt reglum í hvívetna. Höskuldur er í dag forstjóri Arion banka.
Í apríl í fyrra var Valitor einnig sektað um 500 milljónir vegna alvarlegra samkeppnisbrota sem áttu sér stað 2007 og 2008.