Jennifer Lawrence er nú meiri prakkarinn.
Leikarinn Liam Hemsworth var gestur Jimmy Fallon í spjallþætti þess síðarnefnda í gær. Hemsworth svaraði spurningum sem áhorfendur sendu í gegnum Twitter og uppljóstraði að atriðin þar sem hann þurfti að kyssa Jennifer Lawrence í Hunger Games hafi verið afar vandræðaleg.
Fallon krafðist útskýringa og Hemsworth sagði honum að Lawrence, sem góð vinkona hans, hafi alltaf borðað hvítlauk eða túnfisk fyrir rómantísku atriðin. Og hún sá ávallt til þess að hann vissi af því.
Horfðu Liam Hemsworth hjá Jimmy Fallon hér fyrir neðan: