Verslanir með veipur bjóða upp á sérstakan afslátt í marsmánuði til að styðja baráttuna gegn krabbameini og öðrum reykingatengdum sjúkdómum. Þetta kemur fram fréttatilkynningu sem níu verslanir víða um land skrifa undir.
Það vakti talsverða athygli á dögunum þegar Helgi Seljan tíst um að Mottumars væri „siðlaust drasl“ og vísaði í umfjöllun átaksins um rafrettur.
Mottumars er siðlaust drasl sem fyrst og síðast feedar auglýsingastofur https://t.co/3GjZbCVasW
— Helgi Seljan Jóhannsson (@helgiseljan) March 3, 2017
Í tilkynningunni frá Vape-verslununum kemur fram að þær vilji með þessu segja sígarettunum stríð á hendur og bjóða reykingafólki upp á einstaka og viðurkennda lausn til að hætta tóbaksnotkun. „Lausn sem hefur gagnast ævintýralega vel og mun betur en öll nikótínlyf,“ segir þar.
Þúsundir Íslendinga og tugir miljóna manna í heiminum hafa þegar nýtt sér þessa leið til að hætta að reykja. Með því að hætta að reykja eða byrja að veipa fæst samstundis gríðarlegur heilsufarslegur ávinningur og lengri og betri lífdagar.
Í tilkynningunni kemur fram að veipan sé lausn fyrir reykingafólk sem mælt er með m.a. af Lýðheilsustofnun Englands (Public Health England ásamt elstu læknasamtökum heims, Royal College of Physicans og er vísað í skýrslur samtakanna.
„Auk þessara stóru skýrslna, sem innihalda hver hundruði rannsókna, eru sambærilegar niðurstöður einnig að finna í nýlegri skýrslu frá Kanada sem heitir Clearing the Air,“ segir í tilkynningunni en í skýrslunni er meðal annars tekið fram að áhyggjur fólks af því að notkun veipa leiði til sígarettureykinga eigi sér enga stoð í raunveruleikanum.
Í tilkynningunni er einnig vísað í nýlega langtímarannsókn frá Rannsóknarstöð krabbameina í Bretlandi og sagt að hún styðji enn frekar niðurstöðurnar sem vísað er í hér fyrir ofan.
„Public Health England og Royal College of Physicians segja notkun veipunnar vera a.m.k. 95% skaðminni en sígarettur og meta að langtímaáhrif þeirra verði að öllum líkindum langtum minni en þessi 5%, sem sett eru eingöngu til öryggis gagnvart hinu óþekkta. Þetta er svona lágt, vegna þess að helstu skaðlegu efnin í sígarettureyknum, sem valda reykingatengdum sjúkdómum, eru einfaldlega ekki til staðar í veipunum,“ segir í tilkynningunni.
„Önnur efni sem mælast í veipum eru í það litlu magni að þau mælast langt undir hættu- eða varúðarmörkum sem þeim hafa verið settar og eru því margfalt minna en í sígarettureyknum.“