Vefsíða Herjólfs hrundi fljótlega eftir að forsala á Þjóðhátíð opnaði í dag með miklum fagnaðarlátum en hátíðinni hefur verið aflýst síðustu tvö ár.
RÚV greinir frá þessu en þar að sögn Hörðs Orra Grettissonar, framkvæmdarstjóra Herjólfs ohf., hefur vefsíðan hrunið þegar miðasala opnar tíu ár í röð. Segist Hörður finna fyrir gríðarlegri tilhlökkun fyrir hátíðinni þetta árið.
Hörður er einnig formaður Þjóðhátíðarnefndar og reiknar hann með miklum fjölda á hátíðinni í ár. Þó séu færri miðar í sölu þar sem töluverður fjöldi sem keypti miða á Þjóðhátíð í fyrra flutti miðann yfir á hátíðina í ár.
Tónlistarkonan Bríet og tónlistarmaðurinn Bubbi Morthens eru á meðal þeirra sem munu troða upp í Herjólfsdal í ár. Auk þeirra munu Emmsjé Gauti, Reykjavíkurdætur, Flott og Hipsumhaps koma fram.
Miðasala fer fram á Dalurinn.is.