Sex lögreglubílar veittu hvítum sendiferðabíl eftiför á Seltjarnarnesi í kvöld. Samkvæmt Mbl.is hafði vegfarandi séð sendiferðabíllinn akandi á ofsahraða á göngustíg á leið út að Gróttu á Seltjarnarnesi um hálftíma áður. „Svo virðist sem bíllinn hafi endað för sína hálfur ofan í holu á svæðinu. Að sögn vitnis á svæðinu var einn maður handtekinn af lögreglu á staðnum. Talið er að á leið sinni inn á svæðið hafi ökumaðurinn ekið niður hlið sem lokaði svæðið af,“ segir í frétt Mbl.is.
Vegfarandi tók upp eltingaleikinn:
Vegfarandinn Sindri Þór Stefánsson tók upp eltingaleikinn og birti eftirfarandi skilaboð með myndbandinu á Youtube:
Fyrst tók hann fram úr mér á gífurlegum hraða með sprungið dekk Ég salla rólegur að hlusta á Bieber en síðan þegar hann fór á vitlausan vegarhelming og þá gat ég ekki horft uppá þetta lengur. Og varð að taka þetta upp..
Uppfært 6. ágúst kl. 18.25
Samkvæmt frétt Mbl.is hefur maðurinn verið vistaður á stofnun.