Auglýsing

Veisla Baltasars ekki haldin til höfuðs Eddunnar, enginn annar dagur kom til greina

Frétt Nútímans um að Baltasar Kormákur og fyrirtæki hans RVK Studios ætli að halda veislu sama kvöld og á sama tíma og Edduverðlaunin fara fram á sunnudagskvöld vakti mikla athygli. Í samtali við Nútímann segir Baltasar að enginn annar tími hafi komið til greina, verið er að ljúka tökum þennan dag og daginn eftir er hann floginn til útlanda.

Sjá einnig: Baltasar heldur eigið bransapartí á sama kvöldi og á sama tíma og Edduverðlaunin

Baltasar segir af og frá að veislan hans sé á einhvern hátt haldin til höfuðs Eddunnar. Það sé til siðs að fagna tökulokum og nú er einnig tilefni til að fagna gríðarlegri velgengni Ófærðar. Þetta hittist einfaldlega svona á en hann á engu síður von á margmenni, hvort sem fólk mæti þegar veislan hefst eða eftir Edduverðlaunin.

Við erum að ljúka tökum þennan dag og það var ekki möguleiki að halda veisluna á öðrum degi — það er ekki hægt að halda þetta á mánudagskvöldum. Ég er svo að fara erlendis daginn eftir.

Sjálfur veit hann ekki einu sinni hvenær hann kemst í veisluna, það fer eftir hvenær tökum á Eiðnum lýkur en tökur hafa staðið yfir í þrjá mánuði og hann stefnir svo á að frumsýna hana í haust.

„Það er aðallega klaufalegt að vera með þetta á Óskarsverðlaunadaginn,“ segir Baltasar um Edduna en fleiri hafa furðað sig á því að þessum hátíðum sé stillt upp á sama kvöldinu.

En Baltasar ætlar ekki bara að fagna velgengni Ófærðar og tökulokum á Eiðnum. Á laugardaginn verður hann nefnilega fimmtugur þannig að veislan á sunnudaginn verður óhjákvæmilega með afmælisívafi.

„Það er náttúrulega áfall. En það er samt betra en að vera ekki fimmtugur,“ segir Baltasar laufléttur spurður út í stórafmælið. „Ég sá þetta ekki fyrir mér. Svo fannst mér eiginlega meira sjokk þegar ég heyrði að það er 30 ára útskriftarafmæli úr MR í vor.“

En ein spurning að lokum, ætlarðu að mæta á Edduna?

„Það fer eftir því hvenær ég er búinn í tökum. Það getur vel verið að ég láti sjá mig þar.“

Auglýsing

læk

Auglýsing
Auglýsing

Fréttir

Auglýsing