Margir viðskiptavinir Icelandair fengu fyrr í dag tölvupóst með upplýsingum um flug sem hafa þegar verið farin.
Um mannleg mistök var að ræða og þurfa viðskiptavinir ekki að grípa til ráðstafana.
Þessi viðskiptavinur var tilbúinn að skella sér aftur í tímann
Hæ Bragi. Við biðjumst velvirðingar á þessu. Nánari útskýringar er að finna hér https://t.co/4DEvjPJ6VR
— Icelandair (@Icelandair) November 9, 2016
„Við biðjumst velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta kann að hafa valdið,“ segir færslu frá flugfélaginu.