Aðstandendur vefsíðunnar Breathe Heavy hafa viðurkennt að mynd sem átti að sýna ófótósjoppaðan Justin Bieber hafi verið fölsuð, eftir að ungstirnið hótaði að kæra.
Justin Bieber er nýtt andlit nærfatalínu Calvin Klein auglýsingamyndir af honum á brókinni voru birtar á dögunum. Í kjölfarið birti Breathe Heavy mynd sem átti að sýna hvernig Justin Bieber leit út áður en átt var við myndina í myndvinnsluforritinu Photoshop.
Bieber var ekki sáttur og hótaði lögsókn sem var nóg til að aðstandendur vefsíðunnar viðurkenndu að maðkur hafi verið mysunni. Myndin var fölsuð.
Justin Bieber hefur verið duglegur í ræktinni undanfarið. Hann hefur einnig verið duglegur við að birta myndir af sér í ræktinni á Instagram, sem sýna að hann er nokkuð vel á sig kominn.