Menningar-, íþrótta- og tómstundaráð Reykjavíkur telur það ekki heppilegt að hafa aðstöðu fyrir pylsuvagn fyrir framan Sundhöll Reykjavíkur.
Slíkt hefur tíðkast fyrir framan marga sundstaði hér á landi. Á fundi menningar-, íþrótta- og tómstundarráðs í síðustu viku var lagt fram minnisblað umhverfis- og skipulagssviðs frá 16. maí vegna umsóknar um aðstöðu fyrir pylsuvagn fyrir framan Sundhöllina.
Í bókun nefndarinnar segir að ráðið telji ekki heppilegt að hafa pylsuvagn við Sundhöllina og þar er bent á að í nágrenninu séu allmörg kaffihús, veitingastaðir og skyndibitastaðir.