Tónlistarmaðurinn Weird Al Yankovic er staddur á Íslandi en hann greindi frá því á Twitter síðu sinni í gærkvöldi.
Ef marka má færsluna er hann hrifinn af landinu en þar segist hann ætla að breyta nafni sínu í Weird Al Reykjavík. Hann deildi mynd af sér þar sem hann stendur við skilti á Skólavörðustíg fyrir framan Hegningarhúsið.
Yankovic er þekktastur fyrir ábreiður sínar þar sem hann breytir textum úr þekktum popplögum á skemmtilegan hátt. Auk þess hefur hann leikið í fjölda sjónvarpsþátta og kvikmynda á ferlinum.
Yankovic hefur unnið fjögur Grammy verðlaun á ferlinum til þessa fyrir tónlist sína.
Officially changing my name to “Weird Al” Reykjavík pic.twitter.com/Rp5NZ4VTiT
— Al Yankovic (@alyankovic) July 13, 2018