Í það minnsta 168 eru taldir af og 745 særðir eftir að flóðbylgja skall á strönd Indónesíu í gærkvöldi. Yfirvöld telja að eldgos í Anak Krakatau eldfjallinu hafi valdið skriðuföllum neðansjávar.
Bylgjan skall á strönd Súndasunds sem staðsett er á milli eyjanna Súmötru og Jövu. Sutopo Purwo Nugroho, talsmaður almannavarna á svæðinu segir í samtali við AFP fréttastofuna að líklega muni fleiri finnast látnir.
BNO fréttastofan birti þetta hræðileg myndband af því þegar bylgjan skall á tónleikagesti hljómsveitarinnar Seventeen.
NEW: Video shows a tsunami crashing into a venue in Indonesia where the band Seventeen was performing https://t.co/4P9zDCRkKC pic.twitter.com/q9RYOaPTt8
— BNO News (@BNONews) December 23, 2018