Leikarinn Zach Galifianakis heldur áfram að taka sig á.
Hann mætti stórglæsilegur á SAG verðlaunahátiðina á dögunum og grínaðist sjálfur með umbreytinguna þegar hann kynnti sig til leiks í beinni útsendingu: „Ég heiti Zach Galifianakis … Ég er sko leikari.“
Myndbandið má sjá hér fyrir neðan:
Galifianakis byrjaði að grennast eftir að hann hætti að drekka áfengi.
Í viðtali við Conan O’Brien árið 2013 sagðist hann hafa lent í vandræðum með áfengisneysluna. „Ég var að fá mér vodka með pylsum,“ grínaðist hann.