Hráefni:
1 pakki hrísgrjónanúðlur
3 kjúklingabringur
1 dós kókosmjólk
1 líter vatn
3 hvítlauksgeirar
1 búnt kóríander
2 chilli
4 vorlaukar
3-4 cm engifer
1 dl salthnetur
1/2 dl fiskisósa (fæst í austurlensku hillunum í flestum matvörubúðum)
2 teningar kjúklingakraftur
salt og pipar
Aðferð:
1. Skerið kjúklinginn í litla bita og steikið á pönnu. Krydda með salti og pipar. Takið til hliðar og geymið.
2. Saxið hvítlauk, engifer, 1/2 búnt kóríander og 1 chilli mjög smátt niður og steikið í 2 mín með olíu í góðum potti.
3. Bæta svo vatni, kókosmjólk og kjúklingakrafti í pottinn og sjóða á vægum hita í c.a. 20-30 mín.
4. Síðast fer fiskisósan saman við og súpan látin sjóða í 10 mín í viðbót.
Á meðan súpan mallar eru núðlurnar eldaðar (samkvæmt leiðbeiningum á pakkningum) í öðrum potti. Mæli með að skola þær vel í gegnum sigti þegar þær eru tilbúnar.
Þegar súpan er tilbúin skammtar maður í hverja skál núðlum, súpu og svo kjúkling. Þetta er svo toppað með söxuðum vorlauk, chilli, kóríander og hnetum.