Auglýsing

Beikonvafðar döðlur fylltar með geitaosti og rósmarín hunangi

Hráefni:

  • 170 gr mjúkur geitaostur
  • 24 döðlur
  • 12 sneiðar beikon, skornar til helminga svo úr verði 24 stk
  • 1 dl hunang
  • 1 msk saxað ferskt rósmarín
  • 1/2 tsk cayenne pipar
  • sjávarsalt og svartur pipar

Aðferð:

1. Hitið ofninn í 200 gráður og leggið bökunarpappír á ofnplötu.

2. Skerið rauf langsum í döðlurnar, takið steininn úr þeim og fyllið hverja og eina með geitaosti. Vefjið 1 beikonsneið utan hverja döðlu og raðið þeim á ofnplötuna.

3. Hrærið saman hunang, rósmarín og cayenne pipar ásamt klípu af salti og pipar. Dreifið úr hunanginu yfir döðlurnar. Bakið þetta næst í ofninum í 20-25 eða þar til beikonið er orðið vel stökkt.

Auglýsing

læk

Auglýsing
Auglýsing

Fréttir

Auglýsing