Hráefni:
- 12 stk kjúklingalundir
- 12 sneiðar beikon
- 1/2 dl sojasósa
- 2 msk chilli mauk
- 4 msk hunang
- 2 msk púðursykur
- 2 msk rifinn hvítlaukur
- 2 msk limesafi
- 2 msk sesamolía
- 2 msk maíssterkja
- 12 viðarspjót, sem búið er að leggja í bleyti í 20 mín
- lime sneiðar, til skrauts
Aðferð:
1. Hitið ofninn í 190 gráður. Leggið bökunarpappír á ofnplötu.
2. Þræðið kjúklingalundirnar upp á spjótin og vefjið beikonsneið utan um þær. Raðið þeim næst á ofnplötuna.
3. Setjið sojasósu, chilli mauk, hunang, púðursykur, hvítlauk, lime safa, sesamolíu og maíssterkju í pott, hrærið þessu vel saman og hitið að suðu. Penslið kjúklingaspjótin rausnarlega með sósunni. Setjið kjúklinginn næst inn í ofninn í um 30 mín. Þegar eldunartíminn er hálfnaður eru spjótin tekin út, þeim snúið við og pensluð aftur.
4. Í lokin á eldunartímanum er gott að setja ofninn á grill stillingu í 2-3 mín en þá verður beikonið extra stökkt. Ef afgangur er af sósunni má pensla kjúklinginn aftur áður en hann er borinn fram.