Hvort sem þú ert á keto mataræðinu eða öðru mataræði þá get ég ekki mælt meira með þessu heimagerða kexi. Ofboðslega gott með öllu áleggi eða hreinlega eintómt!
Hráefni:
2 dl Rifinn ostur ( gott er að hafa þetta blöndu af einhverjum góðum feitum osti og parmesan osti )
1/2 dl rjómaostur
1 dl möndlumjöl
1 egg
1 tsk rósmarín
1/2 tsk salt
Aðferð:
1. Hita ofninn í 200 gráður og setja bökunarpappír á ofnplötu.
2. Setja ostinn, rjómaostinn og möndlumjölið í skál. Þetta má svo bræða á tvenns konar vegu. Sumir kjósa að nota örbylgjuofninn en þá er þetta sett í örbylgjuvæna skál og inní örbylgjuofn í c.a. 1 mínútu. Einnig er hægt að hita þetta í vatnsbaði á hellu. Þegar þetta hefur allt bráðnað saman og búið er að hræra vel í þessu er gott að láta þetta standa í 2 mínútur áður en maður hrærir eggið saman við ásamt kryddinu.
3. Blandan er síðan sett á ofnplötuna, gott er að setja bökunarpappír yfir og þrýsta á þetta með höndunum svo deigið fletjist út.
4. Skera þetta svo í ferninga með t.d. pizzahníf. Inní ofn í c.a. 5 mín og taka þetta svo út og snúa þessu við, gott er að skera aftur í þetta og baka svo áfram í 5 mín. En fylgjast vel með þessu, ekki gott að brúna þetta of mikið.