Hráefni:
- 5 dl hveiti
- 1 tsk salt
- 2 1/2 dl volgt vatn
- 1 1/8 tsk þurrger
- 1/2 tsk sykur
- Ólívuolía
- 1 tsk ferskt saxað rósmarín (eða 1/2 tsk þurrkað)
- 1 tsk fersk söxuð steinselja (eða 1/2 tsk þurrkað)
- 1/2 tsk ferskt saxað timjan (eða 1/4 tsk þurrkað)
- Sjávarsalt
Aðferð:
1. Blandið hveiti og salti saman í skál.
2. Setjið volgt vatn, þurrger og sykur í aðra skál og leyfið þessu að standa í stutta stund. Hrærið þá hveitinu saman við með sleif þar til þetta hefur blandast vel saman. Setjið plast yfir skálina og leyfið þessu að standa inni í ísskáp í 8 klst eða yfir nótt.
3. Takið 20 cm kökuform og smyrjið það létt að innan með ólívuolíu. Setjið deigið í formið, setjið filmu yfir og leyfið þessu að hefast í 2 klst.
4. Hitið ofninn í 220 gráður.
5. Sáldrið ólívuolíu yfir deigið og ýtið með fingrunum á deigið svo það myndist litlar holur. Dreifið næst kryddjurtunum og salti yfir. Bakið þetta næst í ofninum í 22-24 mín eða þar brauðið er orðið fallega gyllt.