Hráefni:
Olía til djúpsteikingar
2 ferskt Ravioli með fyllingu að eigin vali (fæst í flestum matvöruverslunum)
5 egg
1 dl mjólk
4 dl hveiti
1 tsk salt
1 tsk svartur pipar
4 dl panko brauðraspur
1/2 krukka tilbúin pastasósa, t.d. með basiliku eða hvítlauk
1 dl rifinn parmesan ostur
1 msk fersk steinselja
Aðferð:
1. Hitaðu olíu í breiðum, lágum potti og hafðu að minnsta kosti 5 cm dýpt á olíunni. Á meðan olían hitnar þeytirðu 5 egg og 1 dl af mjólk saman í skál. Í næstu skál blandarðu 4 dl hveiti, 1/2 tsk salt og 1/2 tsk pipar og blandar vel. Í þriðju skálina fara 4 dl af panko brauðraspi, 1/2 tsk salt og 1/2 tsk pipar.
2. Dýfið síðan einu Ravioli í einu, í skálarnar. Fyrst ofan í eggin, síðan í hveitið, síðan aftur í eggin og svo síðast í brauðraspinn. Raðið þeim á stóran disk eða bakka. Á meðan þið gerið þetta er gott að byrja að hita pastasósuna á miðlungshita í litlum potti.
3. Steikið núna 4 ravioli í einu í pottinum. Steikið hvern og einn kodda í um 1-2 mínútur eða þar til þeir verða fallega gylltir. Færið þá síðan á disk með pappír, en hann þerrar mestu umfram olíuna.
Berið þá fram strax með heitu pastasósunni, ferskum parmesan og steinselju.