Hráefni:
- 2 stórar sætar kartöflur, skornar í báta
- 3 msk ólívuolía
- 1 tsk salt
- 3/4 tsk hvítlauksduft
- 1/2 tsk sykur
- 1/2 msk ítalskt krydd
- 1/2 tsk svartur pipar
Aðferð:
1. Hitið ofninn í 200 gráður og leggið bökunarpappír á ofnplötu.
2. Setjið kartöflubátana í stóra skál ásamt ólívuolíu, salti, hvítlauksdufti, sykri, ítölsku kryddi og svörtum pipar. Blandið þessu vel saman.
3. Raðið bátunum á öfnplötuna og bakið í 30 mín. Setjið þá grillið á og bakið áfram í 3-5 mín eða þar til kartöflurnar eru orðnar vel stökkar og farnar að gyllast. Takið þær úr ofninum og kælið í nokkrar mín áður er þær eru bornar fram.