Hráefni:
- 1 poki kartöflur, skornar í tvennt
- ólívuolía
- sjávarsalt
- svartur pipar
- 3 vorlaukar, skornir smátt
- 2 handfylli klettasalat
- 6 radísur, skornar í þunnar sneiðar
Klettasalats-pestó:
- 2 handfylli ferskt klettasalat
- 2 dl fersk basilka
- 2 hvítlauksgeirar
- 1/2 dl ristaðar furuhnetur
- 1/2 dl parmesanostur
- ½ tsk rifinn sítrónubörkur
- 2 msk sítrónusafi
- 1 msk hunang
- 1 -1 1/2 dl ólívuolía
Blandið öllum hráefnum fyrir pestóið saman með töfrasprota eða í matvinnsluvél.
Aðferð:
1. Hitið ofninn í 210 gráður og leggið bökunarpappír á ofnplötu. Dreifið úr kartöflunum á plötuna ásamt ólívuolíu, salti og pipar. Blandið vel saman og bakið í ofninum í 15 mín.
2. Eftir 15 mín er vorlauknum dreift yfir kartöflurnar og þetta bakað í 25 mín í viðbót eða þar til kartöflurnar eru orðnar fallega gylltar og mjúkar í gegn. Takið úr ofninum og leyfið þessu að kólna í 10 mín.
3. Setjið klettasalat og radísur í stóra skál. Blandið kartöflunum og vorlauknum saman við ásamt vel af heimagerða pestóinu. Toppið með svörtum pipar og berið fram strax.