Hráefni:
- Salatið:
- 1/2 lítil vatnsmelóna, steinarnir hreinsaðir úr
- 1/4 hunangsmelóna, steinarnir hreinsaðir úr
- 1/4 kantalópa, steinarnir hreinsaðir úr
- 1 pakkning litlar mozzarella kúlur
- 8-10 sneiðar parmaskinka, rifinn niður
- 4 bollar klettasalat
- Dressing:
- 1 dl fersk mynta
- 1 dl fersk basilika
- 1 hvítlauksgeiri
- salt og pipar
- rifinn börkur af 1 sítrónu
- safinn úr 1 sítrónu
- 1 msk hunang
- 1 dl extra virgin ólívuolía
Aðferð:
1. Skerið út melónukúlur úr melónunum ( Ef ekki er til sérstakt áhald til að móta kúlurnar má skera melónurnar í teninga). Setjið kúlurnar í skál ásamt mozzarellakúlunum og rifnu parmaskinkunni. Leggið til hliðar.
2. Setjið allt hráefnið fyrir dressinguna í matvinnsluvél og blandið vel saman.
3. Dreifið úr klettasalatinu á fat og dreifið úr melónunum, mozzarellaostinum og parmaskinkunni yfir salatið. Hellið dressingu yfir eftir smekk og berið fram strax.