Þessi kemur mjög á óvart. Gott er að bera hana fram með ristuðu pítubrauði, skera það í sneiðar og dýfa því. Góð sem snakk, forréttur eða meðlæti með mat.
Hráefni:
- 1 heill kubbur fetaostur
- 220 gr mjúkur rjómaostur
- 1 dl hrein jógúrt
- 1/2 dl extra virgin ólívuolía
- 2 hvítlauksgeirar rifnir niður
- safinn og börkurinn rifinn niður af 1 sítrónu
- Oreganó til skrauts
Aðferð:
1. Blandið fetaosti, rjómaosti og jógúrt saman í matvinnsluvél eða með töfrasprota þar til blandan er silkimjúk.
2. Bætið ólívuolíu, hvítlauk, sítrónu berki og safa saman við og blandið vel saman
3. Færið dýfuna yfir í skál og toppið hana með oreganó og smá ólívuolíu. Berið fram með pítubrauði eða jafnvel niðurskornu grænmeti.