Hráefni:
- 4 laxa fillet
- 1 brokkolíhöfuð skorið í bita
Hvítlauks-smjör sósa
- 4 hvítlauksgeirar, rifnir niður
- 6 msk bráðið smjör
- 1 msk ljós púðursykur
- 1/2 tsk þurrkað oregano
- 1/2 tsk þurrkað timjan
- 1/2 tsk þurrkað rósmarín
- salt og svartur pipar eftir smekk
- 1 sítróna
- söxuð fersk steinselja til skrauts
Aðferð:
1. Hitið ofninn í 190 gráður og leggið bökunarpappír á ofnplötu. Leggið laxabitana á plötuna og dreifið brokkolí bitunum í kring.
2. Hrærið smjör, púðursykur, oregano, timjan og rósmarín saman í skál og hellið blöndunni yfir fiskinn og brokkolí bitana.
3. Kreistið hálfa sítrónu yfir allt saman og kryddið með salti og pipar.
4. Setjið þetta inn í ofn í 15 mín eða þar til fiskurinn er eldaður í gegn. Toppið með saxaðri steinselju og berið fram með sítrónusneiðum.