Hráefni:
- 700 gr grísalund
- 1 msk cajun krydd
- 2 msk púðursykur
- 6 beikonsneiðar
- 3 msk apríkósu marmelaði
- 1 msk grófkorna sinnep
Aðferð:
1. Veltið kjötinu upp úr cajun kryddinu og púðursykrinum. Vefjið næst beikoninu utan um kjötið.
2. Hitið pönnu (sem má fara inn í ofn) og steikið grísalundina á báðum hliðum þar til beikonið fer að verða stökkt.
3. Færið þá pönnuna inn í 200 gráðu heitan ofn. Hrærið saman marmelaði og sinnep. Eftir c.a. 10-15 mín er kjötið tekið út og marmelaði blöndunni er smurt vel yfir. Setjið þetta aftur inn í ofninn í um 5 mín.