Hráefni fyrir fjögur glös:
- 2 lime, skorin í 4 báta hvort
- 1 msk sykur
- 1 dl myntulauf
- 180 ml gin
- 120 ml granateplasafi
- 2 dl granateplafræ
- 360 ml engiferöl
- 230 ml sódavatn
Aðferð:
1. Setjið lime bátana í könnu ásamt sykri og myntulaufum. Notið mortél eða skaft á sleif og merjið þetta vel saman. Bætið gini, granateplasafa, granateplafræjum, engiferöli og sódavatni í könnuna og hrærið þessu rólega saman.
2. Takið fjögur glös, setjið vel af klaka í þau og skiptið drykkjum jafnt í glösin. Skreytið með lime sneiðum, myntu og granateplafræjum.