Hráefni:
- 2 bananar
- 2 dl hafrar
- 2 egg
- 2 msk jógúrt
- 1 tsk lyftiduft
- vanilludropar eða kanill á hnífsoddi
- 1 tsk smjör eða kókosolía
Aðferð:
1. Setjið allt hráefnið í matvinnsluvél eða blandara þangað til þetta er orðið að silkimjúku þunnu deigi.
2. Hitið smjör/olíu á pönnu og hellið nokkrum „lófastórum“ skellum á pönnuna. Þegar það eru farnar að myndast loftbólur er tími á að snúa pönnukökunum við. Berið fram með sýrópi og ferskum ávöxtum.