Hráefni:
- 2 tsk þurrkað óreganó
- 1 msk sesamfræ
- 1 msk rifinn sítrónubörkur
- 1 tsk cumin
- sjávarsalt og svartur pipar
- stórt pizzadeig, heimagert eða keypt
- extra virgin ólívuolía
- 1 dl basilpestó
- 1 kartafla skorin í þunnar sneiðar
- 1 burrata ostur
- 1 dl fersk söxuð basilika
- rauðar chilliflögur
Aðferð:
1. Hitið ofninn í 210 gráður og leggið bökunarpappír á ofnplötu.
2. Hrærið saman óreganó, sesamfræ, sítrónubörk, cumin og klípu af salti og pipar.
3. Fletið út pizzadeigið og leggið það á ofnplötuna. Penslið deigið með ólívuolíu og dreifið úr sesamblöndunni yfir það. Næst er pestói „drisslað“ yfir og kartöfluskífunum raðað þar ofan á. Salt og pipar.
4. Bakið í 10-15 mín eða þar til pizzan hefur tekið á sig fallega gylltan lit. Takið úr ofninum, rífið burrata ostinn niður og dreifið honum yfir pizzuna. Toppið með ferskri basiliku og chilliflögum.