Hver elskar ekki „brownies“ ? Nútíminn heldur áfram frábæru samstarfi við Gestgjafann og nú er komið að kökunum – ef svo mætti að orði komast. Hér er ljúffeng uppskrift að alvöru brownies! Verði ykkur að góðu 🙂
Hráefni:
- 240 gr smjör, brætt og kælt niður
- 2 msk bragðlaus olía
- 200 gr sykur
- 150 gr ljós púðursykur
- 4 stór egg við stofuhita
- 1 msk vanilludropar
- 3/4 tsk salt
- 130 gr hveiti
- 100 gr kakó
- 200g súkkulaði skorið í grófa bita
Aðferð:
1. HItið ofninn í 175 gráður. Setjið bökunarpappír í 20×30 cm stórt form.
2. Pískið vel saman smjör, olíu og sykur í meðalstórri skál. Bætið eggjunum og vanilludropunum saman við og hrærið í 1 mínútu eða þar til blandan verður ljósari.
3. Sigtið hveiti, kakó og salt saman við. Það má alls ekki hræra deigið mikið á þessu stigi. Aðeins að hræra þetta létt saman, rétt til þess að þurrefnin blandist saman við. Bætið síðan 3/4 af súkkulaðibitunum saman við.
4. Hellið nú blöndunni í formið og setjið afganginn af súkkulaðibitunum yfir. Bakið í 25-30 mínútur. Kælið og takið úr forminu og skerið í hæfilega bita. Njótið!