Hráefni:
- 1 1/2 dl sterkt kaffi
- 1 dl mjólk eða rjómi
- 4 dl klaki
- 1 tsk vanilludropar
- 1-2 tsk hlynsýróp eða annað sýróp að eigin vali
- sjávarsalt á hnífsoddi
- 2 tsk súkkulaðisósa til skrauts
Aðferð:
Blandið öllu hráefninu saman, nema klakanum og hrærið vel saman ( ef kaffið er mjög heitt er þetta góð aðferð til þess að kæla það niður áður en það fer saman við klakann).
Næst fer þetta allt með klakanum í blandara eða matvinnsluvél og blandað vel saman. Hellið í glas og toppið með þeyttum rjóma.