Hráefni:
- 1 kg laukur, skorinn í strimla
- 2 msk ólívuolía
- 2 dl sykur
- 2 dl balsamik edik
- 1 msk þurrkað timjan og rósmarín blandað saman
- 1 tsk sjávarsalt
- 1/2 tsk svartur pipar
Aðferð:
1. Setjið ólívuolíu og lauk í stóran pott. Steikið þetta á meðal hita í um 10-15 mín.
2. Bætið sykri og balsamik ediki saman við og látið þetta malla í dágóðan tíma eða þar til þetta hefur þykknað vel og sykurinn er orðinn að klístruðu sýrópi. Kryddið þetta með salti, pipar og kryddunum.
3. Kælið blönduna og setjið í krukkur. Frábært á ostabakkann, hamborgarann eða í gjafakörfuna.