Hráefni:
- 500 gr kjúklingabringur
- salt & pipar
- 1/2 dl ólívuolía
- 5–6 litlir tómatar skornir niður
- 3 hvítlauksgeirar rifnir niður
- handfylli af ferskri basiliku, skorin gróft niður
- 4 msk smjör
- 1 pakki spaghetti eða linguine pasta
Aðferð:
1. Kryddið bringurnar rausnarlega með salti og pipar. Steikið þær upp úr olíu á pönnu í nokkrar mínútur á hvorri hlið. Þegar þær eru eldaðar í gegn eru þær lagðar til hliðar á fat eða disk.
2. Sjóðið pastað eftir leiðbeiningum á pakkningu.
3. Notið sömu pönnu og áðan og setjið á hana tómatana og látið þá malla þar til þeir fara að maukast vel saman. Bætið þá hvítlauknum og smjörinu saman við og hrærið vel saman. Setjið næst kjúklinginn aftur á pönnuna og leyfið þeim að hitna í sósunni í nokkrar mínútur. Kryddið til með salti og pipar eftir smekk. Loks er basilikan hrærð saman við. Berið fram með spaghetti og toppið með extra basiliku og/eða parmesan.