Þetta miðvikudagskvöld er komið að safaríkum kjúklingabringum í hvítlauks-sveppasósu. Uppskriftin er í boði Gestgjafans en við hjá Nútímanum eigum í frábæru samstarfi við matreiðslumenn tímaritsins. Ef þú elskar að elda mat þá mælum við hiklaust með áskrift að Gestgjafanum en hægt er að næla sér í hana hér!
En vindum okkur þá í hráefnin og aðferðina sem er notuð til að framreiða þennan ljúffenga kjúkling sem er fullkominn á matardisk heimilisins hvaða dag vikunnar sem er!
Hráefni:
- 2-3 kjúklingabringur, skornar í tvennt langsum
- 3 msk ólívuolía
- salt og pipar eftir smekk
- 3 msk smjör
- 5 dl niðurskornir sveppir
- 1 laukur, skorinn smátt
- 3 hvítlauksgeirar, rifnir niður
- 3 msk smjör
- 3 dl kjúklingasoð
- 1 1/2 dl rjómi
- 1 tsk ferskt saxað rósmarín
Aðferð:
1. Hitið ólívuolíu á pönnu. Kryddið kjúklinginn með salti og pipar. Steikið kjúklinginn í 5-7 mín á hvorri hlið. Takið hann til hliðar af pönnunni.
2. Bræðið 3 msk af smjöri á pönnunni og steikið sveppi og lauk í um 5-7 mín. Bætið þá hvítlauknum saman við og steikið áfram í 1-2 mín.
3. Hrærið hveitið saman við ásamt kjúklingasoði, rjóma og rósmarín. Hrærið vel saman þar til sósan fer að þykkna. Færið þá kjúklinginn yfirá pönnuna og leyfið honum að hitna í sósunni í 2-3 mín. Berið fram með hrísgrjónum og salati.