Það var nóg um að vera á vefnum hjá okkur í gær og því vildum við byrja þennan föstudag á rólegu nótunum og, í samstarfi við Gestgjafann, deila með ykkur gómsætri uppskrift sem flott er að henda í þessa helgina! Njótið dagsins og munið að vera góð hvert við annað!
Hráefni:
- 2 kjúklingabringur skornar í tvennt, langsum
- 1/2 tsk hvítlauksduft
- Salt & pipar eftir smekk
- hveiti
- 1 msk ólívuolía
- 3 msk smjör
- 1 pakki spaghetti eða linguine pasta
- 120 gr rjómaostur, við stofuhita
- 2 1/2 dl rjómi
- 1/2 dl kjúklingasoð
- 2 hvítlauksgeirar rifnir niður
- 2 1/2 dl rifinn parmesanostur
Aðferð:
1. Sjóðið pasta eftir leiðnbeiningum á pakkningu. Rífið niður parmesanostinn.
2. Kryddið kjúklinginn með hvítlauksdufti, salti, pipar og veltið þeim uppúr hveiti. Hitið olíu á pönnu og steikið bringurnar á háum hita í um 5 mín á hvorri hlið eða þar til þær eru fallega gylltar og eldaðar í gegn. Takið kjúklinginn af pönnunni og leggið til hliðar.
3. Þurrkið mestu olíuna af pönnunni og setjið næst 2 msk af smjöri á pönnuna ásamt rjómaosti, rjóma, kjúklingasoði og hvítlauk. Hitið þar til rjómaosturinn bráðnað og sósan er orðin silkumjúk. Leyfið þessu næst að malla í um 5 mín og hrærið reglulega í sósunni. Setjið þá parmesanostinn saman við og mallið áfram í 1 mín. Kryddið til með salti og pipar.
4. Setjið pastað saman við sósuna og blandið vel. Skerið kjúklinginn í hæfilega munnbita og raðið ofan á pastað. Berið fram með extra rifnum parmesan…
Namminamm!