Hráefni fyrir marineringu:
- 2 msk hrísgrjóna edik
- ¼ tsk hvítur pipar
- 5 msk sojasósa
- 4 msk hoisin sósa
- 1 tsk sesam olía
- 2 msk sykur
- 2 hvítlauksgeirar, rifnir niður
- 5 cm engiferbútur, rifinn niður
Hráefni fyrir kjúklinginn:
- 3 kjúklingabringur skornar í bita
- 1 tsk maíssterkja
- 1 msk olía
- 8 heilir þurrkaðir chilli
- 2 rauðar paprikur, skornar í grófa bita
- 1 kúrbítur skorinn í grófa bita
- 12 vorlaukar skornir í sneiðar
- 1 dl salthnetur eða kasjúhnetur
Aðferð:
1. Setjið hráefnin fyrir marineringuna í skál og blandið vel. Setjið kjúklinginn í aðra skál ásamt maíssterkjunni og blandið vel saman. Hrærið næst 1/3 af marineringunni saman við kjúklinginn, leggið plastfilmu yfir og geymið í ísskáp í minnst 30 mín.
2. Hitið pönnu og þurr-ristið chilli í nokkrar mín, eða þar til þeir fara að mýkjast. Takið þá síðan til hliðar. Bætið næst olíu á pönnuna og steikið kjúklinginn þar til hann er eldaður í gegn. Bætið þá papriku, kúrbít og vorlauk á pönnuna og steikið áfram í um 2-3 mín. Hellið þá afgangs 2/3 af marineringunni saman við ásamt chilli (sem voru þurr-ristaðir áðan) og leyfið þessu að malla þar til sósan fer að þykkna eða í um 2 mín.
3. Bætið hnetum saman við í lokin og berið fram með soðnum hrísgrjónum.