Hráefni fyrir laxinn:
- 1 laxaflak eða 3-4 bitar
- 1 msk púðursykur
- 1 tsk karrý
- 1/2 tsk laukduft
- 1/2 tsk hvítlauksduft
- 1/2 tsk sjávarsalt
- 1–2 tsk ólívuolía
Hráefni fyrir sósuna:
- 1 msk ólívuolía
- 2 hvítlauksgeirar
- 1 engiferbiti, á stærð við þumal
- 1 msk púðursykur
- 1 msk rautt karrý mauk
- 1 dós kókosmjólk
- 2 msk fiskisósa
- safinn úr 1 lime
- 3 lúkur spínat, saxað niður
- ferskt kóríander eða basilika
Aðferð:
1. Hitið ofninn í 200 gráður og leggið bökunarpappír á ofnplötu.
2. Blandið saman öllum hráefnum fyrir laxinn og hrærið vel saman. Leggið laxinn á ofnplötuna, roðið niður, og smyrjið blöndunni vel yfir allan fiskinn. Bakið í 6-12 mín ( fer eftir þykktinni á laxinum).
3. Hitið olíu á pönnu og steikið hvítlauk og engifer í nokkrar mínútur á miðlungshita. Bætið þá púðursykri og rauðu karrý mauki á pönnuna og steikið áfram í um 3 mín. Þá fer kókosmjólkinn saman við ásamt fiskisósu og lime safa. Í lokin fer spínatið á pönnuna. Berið laxinn fram með hrísgrjónum, sósuna yfir og toppið með fersku kóríander eða basilku