Þetta salat er góð tilbreyting frá hinum hefðbundna salati með káli. Súper gott með fisk, kjúklingi, eða jafnvel bara eitt og sér.
Hráefni:
- 1 pakkning litlir tómatar skornir í tvennt
- 2 avocado, skorin í bita
- 1 gúrka, skorin í bita
- 1/2 dl rauðlaukur skorinn í bita
- 1 poki ferskur mozzarella skorinn í bita
Dressing:
- 1/2 dl basilpestó
- 1 msk sítrónusafi
- salt og pipar eftir smekk
- ólívuolía, ef þarf
Aðferð:
- Blandið öllu hráefninu saman í góða skál. Bætið dressingunni saman við og blandið vel saman. Kryddið til með salti og pipar.