Hráefni:
- 1 til 2 msk ólívuolía
- 220 gr ferskur mozzarella skorinn í sneiðar
- 5-6 ferskar fíkjur skornar í sneiðar
- salt & svartur pipar
- 8-10 þunnar parmaskinkusneiðar
- 2-3 msk balsamik-sýróp
- 1 tilbúið pizzadeig
Aðferð:
1. Hitið ofninn í 200 gráður og leggið bökunarpappír á ofnplötu. Fletjið deigið út og leggið á ofnplötuna.
2. Penslið ólívuolíu yfir allt deigið og raðið mozzarella sneiðunum yfir. Raðið næst fíkjunum á milli ost sneiðanna. Kryddið með salti og pipar.
3. Bakið í 15-20 mín eða þar til pizzan er elduð í gegn og kantarnir orðnir fallega gylltir. Þegar pizzan kemur úr ofninum er parmaskinkunni raðað yfir og balsamik-sýrópinu er „drisslað“ yfir. Berið fram strax.