Hráefni:
- 1 stórt brokkolí, skorið í bita
- 1 tsk salt & 1/2 tsk pipar
- rauðar chilli flögur
- 3-4 msk ólívuolía
- 4 hvítlauksgeirar skornir í þunnar sneiðar
- 2 msk rifinn parmesan
- rifinn sítrónubörkur af hálfri sítrónu
Aðferð:
1. Hitið ofninn í 200 gráður og setjið bökunarpappír á ofnplötu. Setjið brokkolí bitana í stóra skál með ólívuolíu, salti, pipar og chilli flögum. Hristið þetta vel saman. Hellið þessu á ofnplötuna og drefið vel úr bitunum.
2. Bakið þetta í um 10 mín, takið þá plötuna út og dreifið hvítlaukssneiðunum yfir þetta. Bakið þetta aftur í um 6 mín. Takið þetta þá út aftur og drefið núna parmesan ostinum yfir þetta áður en þetta fer aftur inni í ofn í um 2 mín.
3. Takið þetta úr ofninum og raspið sítrónubörk yfir. Berið fram strax.