Hráefni:
- 4-5 sneiðar beikon, skorið smátt
- 600 gr ferskt rósakál
- 3-4 hvítlauksgeirar, rifnir niður
- 1 msk balsamik edik
- sjávarsalt
- svartur pipar
Aðferð:
1. Hitið ofninn í 200 gráður og setjið bökunarpappír á ofnplötu. Skerið rósakálið til helminga.
2. Hitið pönnu á miðlungshita. Steikið beikonið þar til þar er orðið mjúkt og byrjað að steikjast, en ekki orðið stökkt. Taktu pönnuna af hitanum og bættu hvítlauknum og basamik ediki á pönnuna og blandaðu allt vel saman.
3. Settu allt rósakálið í miðjuna á ofnplötunni og helltu beikoninu af pönnunni yfir og blandaðu öllu vel saman. Dreifðu svo jafn úr þessu á plötuna og þetta er kryddað með salti og pipar.
4. Bakaðu þetta í ofninum í 20 mín, þá tekurðu þetta út og hrærir vel upp í þessu og bakar þetta svo aftur í 20 mín eða þar til rósakálið er orðið vel mjúkt og beikonið stökkt. Salt og pipar, eftir smekk. Berið fram heitt!