Hráefni:
- 1 poki mini gulrætur, eða stærri skornar í strimla
- 1 dl smjör
- 1 msk rifinn hvítlaukur
- 3 msk rifinn parmesan
- 1 msk fersk söxuð steinselja
Aðferð:
1. Hitið ofninn í 200 gráður og leggið bökunarpappír á ofnplötu.
2. Dreifið úr gulrótunum á ofnplötuna.
3. Bræðið smjör í potti ásamt hvítlauknum og hellið þessu næst yfir gulræturnar. Bakið í 10 mín. Takið þetta þá út og dreifið parmesan og steinselju yfir. Bakið áfram í aðrar 10 mín.