Hráefni:
- 1.5 kg litlar kartöflur
- 60 ml ólívuolía
- 6 hvítlauksgeirar, skornir smátt eða rifnir niður
- salt og pipar
- 1 msk ítalskt krydd
- 2 dl parmesan ostur, rifinn niður
- 1 dl smjör
- steinselja til skrauts
Aðferð:
1. Hitið ofninn í 200 gráður. Setjið bökunarpappír á ofnplötu.
2. Sjóðið kartöflurnar í 5-8 mínútur.
3. Takið stóra skál og blandið saman, ólívuolíu, hvítlauk, salti, ítölsku kryddi, pipar og parmesan osti. Skerið kartöflurnar í helminga og blandið vel saman við í skálina með parmesan blöndunni.
4. Á meðan bræðum við smjörið og steinseljuna saman í potti eða örbylgjuofni. Dreifið kartöflunum jafnt á ofnplötuna og bakið í um 25 mínútur. Gott er að snúa þeim við þegar eldunartíminn hálfnaður. Þegar kartöflurnar koma úr ofninum er smjörinu hellt yfir allt saman. Berið fram strax og njótið.