Hráefni:
- 1 poki gulrætur, hreinsaðar og skornar í strimla
- 1 msk ólívuolía
- salt og pipar eftir smekk
- 1 1/2 dl rifinn parmesan
Aðferð:
1. Hitið ofninn í 220 gráður og leggið bökunarpappír á ofnplötu.
2. Setjið gulræturnar í skál ásamt olíu, salti, pipar og parmesanosti. Hristið þetta vel saman. Dreifið úr gulrótunum á ofnlötuna og bakið í um 16-20 mín, gott er að snúa þeim við þegar eldunartíminn er hálfnaður.