Auglýsing

Ofnbakaðar Quesadillas

Hráefni:

  • 4 tortillur
  • Ólívuolía
  • 200 gr sveppir, sneiddir niður
  • 2 1/2 dl rifinn mozzarella
  • 2 dl rifinn cheddar ostur
  • 5 dl spínat, saxað gróft niður

Aðferð:

1. Hitið ofninn í 200 gráður og leggið bökunarpappír á ofnplötu.

2. Steikið sveppina á pönnu uppúr smjöri þar til þeir eru orðnir vel mjúkir og farnir að taka á sig fallega gylltan lit. Leggið þá síðan til hliðar.

4. Penslið aðra hliðina á tortillunum og leggið þær á ofnplötuna, penslaða hliðin niður. Dreifið sveppunum jafn á þær allar ásamt spínati, mozzarella og cheddar ostinum. Brjótið tortillurnar saman og bakið þær í um 6 mín og snúið þeim þá við og bakið í aðrar 6 mín eða þar til osturinn er bráðnaður og tortillurnar farnar að brúnast örlítið.

Gott er að bera þær fram með sýrðum rjóma, guacamole eða salsa.

Auglýsing

læk

Auglýsing
Auglýsing

Fréttir

Auglýsing