Hráefni:
- 1 poki kartöflur
- 2 msk ólívuolía
- 3 msk basilpestó
- 1/2 tsk sjávarsalti
- 1/8 tsk svartur pipar
- 1 dl rifinn parmesan
- auka parmesan til skrauts
- söxuð fersk steinselja
Aðferð:
1. Hitið ofninn í 200 gráður.
2. Blandið ólívuolíu, basil pestó, salt, pipar og rifnum parmesan í skál. Blandið kartöflunum saman við og blandið.
3 Setjið bökunarpappír á ofnplötu og dreifið kartöflunum á plötuna. Bakið í 30-35 mín eða þar til kartöflurnar verða fallega gylltar.
4. Takið úr ofninum og dreifið rifnum parmesan yfir ásamt steinselju.