Hráefni:
- 6 úrbeinuð kjúklingalæri
- 1 msk ítalskt krydd
- Sjávarsalt og svartur pipar
- 3 msk smjör
- 5 dl spínat, saxað niður
- 10 kartöflur, afhýddar og skornar í tvennt ( eða fernt ef kartöflurnar eru stórar )
- 2 msk fersk söxuð steinselja
Hvítlauks-parmesansósa:
-
- 50 gr smjör
- 4 hvítlauksgeirar, rifnir niður
- 2 msk hveiti
- 2 1/2 dl kjúklingsoð (meira ef þarf)
- 1 tsk þurrkað timjan
- 1/2 tsk þurrkuð basilika
- 2 dl rjómi
- 1 dl rifinn parmesan
- sjávarsalt og pipar
Aðferð:
1. Hitið ofninn í 200 gráður. Smyrjið eldfast mót að innan með olíu eða smjöri.
2. Kryddið kjúklinginn með salti, pipar og ítölsku kryddi. Bræðið 2 msk af smjöri á pönnu og steikið kjúklinginn í um 2-3 mín á hvorri hlið eða þar til hann orðinn fallega gylltur. Leggið hann til hliðar á disk eða fat.
3. Notið sömu pönnu og bræðið 1 msk af smjöri. Mýkið spínatið á pönnunni í um 2 mín. Takið það af pönnunni og leggið til hliðar.
4. Bræðið næst 50 gr af smjöri á pönnunni og steikið hvítlaukinn í 1-2 mín. Hrærið þá hveitinu saman við og hrærið stanslaust í þessu í 1 mín. Hrærið næst kjúklingasoðinu saman við í skömmtum. Síðast er rjómanum hrært saman við þetta ásamt parmesan ostinum. Kryddið þetta til með salti, pipar, basiliku og timjan.
5. Raðið kjúklingum í eldfasta mótið, dreifið kartöflunum og spínatinu meðfram kjúklingnum og hellið síðast rjómasósunni yfir þetta. Bakið þetta í ofninum í c.a. 25-30 mín eða þar til kjúklingurinn er eldaður í gegn og kartöflurnar orðnar mjúkar. Toppið með ferskri steinselju og berið fram strax.